Forsíða
Nánar um happadrættið
Miðaverð er kr. 5.000- og snýst happadrættið um að í þann reit sem folaldsmerin skítur er 1 nautskrokkur í verðlaun frá Norðlenska, í þann reit sem folaldið skítur er lambsskrokkur í verðlaun frá Norðlenska einnig verða dregnir út aukavinningar t.d. 10 tíma kort í Hrafnagilssundlaugina. Reitirnir verða 98 talsins og verður hver reitur númeraður frá …
Handverkshátíð 2010
Funi þarf að útvega fólk í miðasölu á Handverkshátíðinni á Hrafnagili mánudaginn 9. ágúst kl. 11.30 – 19.00. Þeir sem eru tilbúnir að taka þetta að sér hafi vinsamlegast samband við Huldu í Kálfagerði í síma 463 1294, 866 9420, eða í tölvupóstfang dvergar@simnet.is . Sjá upplýsingar um handverkshátíðina á heimasíðu hátíðarinnar www.handverkshatid.is
Íslandsmót 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH (félög skrá í sportfeng, mótsnúmer er IS2010SOR054). Síðasti skráningardagur er 16. ágúst og skal senda skráningu til Jónasar á tölvupóstfang jonas.vigfusson@gmail.com Skráningargjald er 4.000 krónur. Leggja á inn á reikning 0135-26-002870, kt. 640269-6509 og senda staðfestingu á brs2@hi.is …