Bæjakeppnin

Nú er verið að safna áheitum í bæjakeppni Funa. Hver bær sem tekur þátt greiðir kr. 1.500- og hægt er að leggja upphæðina inn á reikning Funa kt. 470792-2219, banki:0162-26-003682 og senda tölvupóst á gjaldkerann Binna í Hólsgerði í tölvupóstfang holsgerdi@simnet.is.
Bæjakeppnin hefst síðan sunnudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Skráning er á staðnum og hefst kl. 12.30.
Keppt verður í polla-, barna-, ungmenna-, karla- og kvennaflokki ef næg þátttaka fæst.
Að lokinni keppni verður kaffihlaðborð að hætti Funamanna.
Mætum og styrkjum félagið okkar.
Stjórn og mótanefnd

Deila: