Reiðtúr að Borgarrétt

Laugardaginn 27. ágúst verður farið í reiðtúr frá Melgerðismelaréttinni um kl. 20. Riðið verður að gömlu Borgarréttinni og e.t.v. eitthvað lengra.
Að reiðtúr loknum mun séra Hannes Örn Blandon flytja hugvekju í hesthúsinu á Melgerðismelum.
Mætum sem flest og þjálfum gangna- og bæjakeppnishrossin.
Ferðanefnd

Deila: