Hrossaræktarfélagið Náttfari -Sölusýning Melgerðismelum

Hrossaræktarfélagið Náttfari verður með sölusýningu á Melgerðismelum,
Stóðréttardaginn 8. október n.k.

Boðið er upp á sýningu taminna hrossa í reið og sýningu unghrossa í Melaskjóli.

Skráning berist á netfangið theg@isor.is með upplýsingum um:

A. Nafn hross og fæðingarnúmer þess
B. Lýsing eiganda/umráðamanns á hrossinu
C. Verð
D. Eiganda og/eða umráðamann

Gefin verður út sýningarskrá auk þess sem hrossin verða mynduð og þær upplýsingar gerðar aðgengilegar á Netinu.

Verðskrá sölusýningarinnar er tvískipt:
 Hross í reið, mynduð og auglýst á Netinu: 3500.-
 Ótamin hross, upplýsingar settar á Netið: 1500.-

Félagar í Náttfara fá 500.- kr afslátt á þessum verðum.

Upplýsingar fást hjá Þorsteini Egilson, 8952598/theg@isor.is

F.h. stjórnar Náttfara,
Þorsteinn á Grund

Deila: