Fræðslufyrirlestur – frestun
Fræðslufyrirlesturinn sem átti að vera þann 8. mars frestast um óákveðinn tíma.
Fræðslufyrirlesturinn sem átti að vera þann 8. mars frestast um óákveðinn tíma.
66°Norður er með eftirfarandi tilboð til Funamanna. Ath. tilboðið hefur verið framlengt til föstudagsins 9. mars – ný bolasending í næstu viku. Fullorðnir K11180-470, Askja light flíspeysa. 12.900 m/vsk – Blár litur, eitt snið fyrir bæði kynin K11810-900, Heimaklettur softshell jakki 15.900 m/vsk Svart að lit. Kemur bæði í KK sniði ogKVK sniði Börn Baldur– …
Aðalfundur Hestamannafélagsins Funa var haldinn í Funaborg á Melgerðismelum 20. febrúar 2012. Fundurinn var vel sóttur og líflegar umræður. Birgir Arason stýrði fundi. Valur fráfarandi formaður flutti skýrslu stjórnar þar sem kom glögglega fram viðburðaríkt ár hjá Hestamannafélaginu. Talsverðar umræður voru um niðurstöðu stjórnar LH við úthlutun landsmóts þar sem Eyfirðingar voru sniðgengnir enn eina …
Sesselja Sigurðardóttir var fædd í Leyningi í Saurbæjarhreppi þann 17. apríl 1871 og ólst þar upp við gott bú. Hún kvæntist Vigfúsi Jónssyni frá Hólum 1895 og þau fluttust að Jökli árið 1897 ásamt syni sínum, Jóni Vigfússyni, þá um ársgömlum. Jón lýsir móður sinni svo í tímaritinu Heima er best: Hún… varð þrekmikil …
Helgina 25 – 26 febrúar verður reiðnámskeið með Agli Þórarinssyni að Melaskjóli. Námskeiðið verður á formi einkakennslu og verður kennt 2 x 40 min. bæði á laugardeginum og sunnudeginum. Egill hefur áratugareynslu af reiðkennslu bæði hér heima og erlendis ásamt því að vera margreyndur keppnis- og sýningarknapi. Aðeins 10 – 12 manns komast á námskeiðið. …
Vinnu við könnun fræðslunefndar fyrir árið 2011 er nú lokið og niðurstöður hennar má nálgast hér. Skjalið er á pdf formi
Aðalfundur Hestamannafélagsins Funa verður haldinn í Funaborg mánudaginn 20. febrúar kl. 20.30. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Gert er ráð fyrir að formenn nefnda skili ársskýrslu til stjórnar fyrir aðalfund eða á fundinum sjálfum. Tilboð frá 66°norður til Funafélaga kynnt Nýir félagar velkomnir. Stjórnin
Föstudaginn 17. febrúar stendur Búgarður fyrir degi með hrossaræktarráðunauti í Topreiter höllinni á Akureyri. Nánari upplýsingar má finna inni á heimasíðu Búgarðs
Sjá nánar inni á heimasíðu Gnýfara
Gestur Páll Júlíusson dýralæknir og járningarmeistari verður með járningarnámskeið dagana 3 – 4 febrúar. Námskeiðið hefst með bóklegri kennslustund í Funaborg á föstudagskvöldinu kl. 20:00, stundvíslega. Á laugardeginum verður verkleg kennsla haldin í hesthúsinu að Hólshúsum. Verklegri kennslu verður hagað með þeim hætti að nemendur verða paraðir tveir og tveir saman og skipt upp í …