Reiðnámskeið – Egill Þórarinsson

Helgina 25 – 26 febrúar verður reiðnámskeið með Agli Þórarinssyni að Melaskjóli. Námskeiðið verður á formi einkakennslu og verður kennt 2 x 40 min. bæði á laugardeginum og sunnudeginum. Egill hefur áratugareynslu af reiðkennslu bæði hér heima og erlendis ásamt því að vera margreyndur keppnis- og sýningarknapi. Aðeins 10 – 12 manns komast á námskeiðið.

Mynd er fengin af facebooksíðu Egils

  • Skráningarfrestur er miðvikudagurinn 22. febrúar til kl. 18:00
  • Skráning er á netfangið namskeid@funamenn.is
  • Verð 10.000 kr. á mannin
  • Nægt pláss í hesthúsinu

 

Deila: