Happadrætti Funa

Á handverkshátíðinni stendur Hestamannafélagið Funi fyrir nýstárlegu happadrætti þar sem hryssa og folald velja vinningsreiti innan afmarkaðs svæðis. Veglegir vinningar og takmarkaður miðafjöldi og miðaverð því nokkuð hátt. Biðjum við sveitunga að taka vel á móti sölufólki okkar.

Handverkshátíð 2010

Funi þarf að útvega fólk í miðasölu á Handverkshátíðinni á Hrafnagili mánudaginn 9. ágúst kl. 11.30 – 19.00. Þeir sem eru tilbúnir að taka þetta að sér hafi vinsamlegast samband við Huldu í Kálfagerði í síma 463 1294, 866 9420, eða í tölvupóstfang dvergar@simnet.is . Sjá upplýsingar um handverkshátíðina á heimasíðu hátíðarinnar www.handverkshatid.is

Íslandsmót 2010

Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH (félög skrá í sportfeng, mótsnúmer er IS2010SOR054). Síðasti skráningardagur er 16. ágúst og skal senda skráningu til Jónasar á tölvupóstfang jonas.vigfusson@gmail.com Skráningargjald er 4.000 krónur. Leggja á inn á reikning 0135-26-002870, kt. 640269-6509 og senda staðfestingu á brs2@hi.is …

Íslandsmót 2010 Read More »

Kynbótasýning á Náttfaravellinum

Nú hefur verið ákveðið að kynbótasýning verður á Náttfaravellinum á Melgerðismelum dagana fyrir stórmótið 21. og 22.ágúst. Það stefnir því í glæsilegt opið mót með öllu á 50 ára afmælisári Funa. Nánar auglýst síðar. Hestamannafélagið Funi

Funaferð

Til stendur að fara í Sörlastaði dagana 9. til 11. júlí n.k. ef næg þátttaka fæst.

Úrtökur falla niður

Vegna fárra skráninga hefur verið hætt við héraðssýningu HEÞ, sem var auglýst hér á vefnum. Þá hefur einnig verið hætt við úrtökur fyrir gæðingakeppnina á landsmótinu, vegna þess að landsmótinu var frestað.

Kæru Funamenn

Við viljum minna ykkur á afmælisfögnuðinn okkar
sem verður 11. júní í Funaborg á Melgerðismelum. Húsið opnar kl 19:30 með fordrykk og borðhaldið hefst kl 20:00.

Héraðssýning HEÞ

Héraðssýning kynbótahrossa verður á Akureyri 7.-11. júní n.k. Tekið er við skráningum í Búgarði, sími 460 4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Síðasti skráningardagur er 2. júní, sem er jafnframt síðasti greiðsludagur skráningargjalds. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr. 14.500 fyrir fulldæmt hross, en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm, …

Héraðssýning HEÞ Read More »