Aðalfundur Hestamannafélagsins Funa

Aðalfundur Hestamannafélagsins Funa verður haldinn í Funaborg mánudaginn 20. febrúar kl. 20.30. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Gert er ráð fyrir að formenn nefnda skili ársskýrslu til stjórnar fyrir aðalfund eða á fundinum sjálfum. Tilboð frá 66°norður til Funafélaga kynnt Nýir félagar velkomnir. Stjórnin

Dagur með hrossaræktarráðunaut

Föstudaginn 17. febrúar stendur Búgarður fyrir degi með hrossaræktarráðunauti í Topreiter höllinni á Akureyri. Nánari upplýsingar má finna inni á heimasíðu Búgarðs  

Járningarnámskeið – Gestur Páll

Gestur Páll Júlíusson dýralæknir og járningarmeistari verður með járningarnámskeið dagana 3 – 4 febrúar. Námskeiðið hefst með bóklegri kennslustund í Funaborg á föstudagskvöldinu kl. 20:00, stundvíslega. Á laugardeginum verður verkleg kennsla haldin í hesthúsinu að Hólshúsum. Verklegri kennslu verður hagað með þeim hætti að nemendur verða paraðir tveir og tveir saman og skipt upp í …

Járningarnámskeið – Gestur Páll Read More »

Tilkynning frá Náttfara

Folalda- og ungfolasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður í Melaskjóli, Melgerðismelum, laugardaginn 28. janúar 2012. Hrossin verða sköpulagsskoðuð frá kl. 10 og hlaupaæfingar hefjast kl. 13. Eyþór Einarsson mun stýra dómshaldi. Skráningar berist til Þorsteins á Grund um tölvupóst í netfangið theg@isor.is fyrir lok fimmtudagsins 26. janúar. Skrá þarf nafn og fæðingarnúmer hrossa ásamt símfangi umráðamanns. Kveðja …

Tilkynning frá Náttfara Read More »

Vinnukvöld í Melaskjóli

Til stendur að hafa vinnukvöld miðvikudagskvöldið 25. jan. kl. 20:00 til að setja upp batta í reiðskemmuna.  Ef einhverjir eiga lausa kvöldstund væri aðstoð vel þegin.  Þeir sem koma mættu gjarnan taka með sér skrúf-vélar ef þær eru til á heimilinu.

Járningarnámskeið

Mynd fengin af hestabladid.is Dagana 3. og 4. febrúar verður Gestur Páll járningarmeistari og dýralæknir með járningarnámskeið. Nú er um að gera að taka dagana frá og skella sér á námskeið. Verkalýðsfélög á borð við Einingu-Iðju greiða niður námskeiðiskostnað fyrir félagsmenn sína. Námskeiðið verður nánar auglýst síðar Fræðslunefnd Funa

Hestadómarinn

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands að Hvanneyri í samstarfi við Gæðingadómarafélag LH og Íþróttadómarafélag LH mun bjóða upp á námskeiðið Hestadómarinn. Námskeiðið er hugsað fyrir starfandi dómara, fólk sem vill gerast dómarar og einnig fyrir hinn almenna hestamann sem vill bæta við þekkingu sína. Verkalýðsfélög á borð við Einingu-Iðju greiða niður námskeiðiskostnað fyrir félagsmenn sína. Nú er …

Hestadómarinn Read More »

Fræðslufyrirlestur Jóhanns Friðgeirssonar

Á myndinni eru þau Rósa Hreinsdóttir (Halldórsstöðum), Birgir Stefánsson (Litla-Garði) og Ágúst Ásgrímsson (Kálfagerði). Á fræðslufyrirlestrinum þann 5. janúar fræddi Jóhann Friðgeirsson okkur um ábendingar knapa og viðbrögð hestsins við þeim. Jóhann hefur starfað við reiðkennslu, tamningar, sýningar og í raun allt það sem fellur til við hestamennskuna áratugum saman. Síðustu 20 árin hefur hann að mestu kennt í …

Fræðslufyrirlestur Jóhanns Friðgeirssonar Read More »