Bæjakeppni Funa

Þann 28. ágúst verður hin frábæra bæjakeppni Funa haldin á Melgerðismelum! Fjölmargir bæir taka þátt og þökkum við kærlega fyrir það!
Keppt verður í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna-, karla-, og kvennaflokki ef næg þáttaka fæst. Þátttaka er öllum opin. Skráning er á staðnum og byrjar kl.12:30 og keppnin hefst kl 13:30.
Að lokinni keppni verður kaffihlaðborð að hætti Funamanna og koma menn langt að til að ná sér í tertusneið :=)
Stjórnin

Deila: