Úrtaka fyrir Fjórðungsmót Austurlands

Úrtaka.
Hestamannafélagið Funi verður ekki með sérstaka úrtöku fyrir Fjórðungsmót Austurlands. Þeir sem hafa áhuga á að fá forkeppnisdóma á sín hross er bent á gæðingakeppni Léttis sem verður haldin á Hlíðarholtsvelli 20 – 21 júní nk.
Allar nánari upplýsingar er að finna í þessari auglýsingu:

Gæðingakeppni Léttis verður haldin á Hlíðarholtsvelli 20-21. júní. Dagsskrá verður auglýst síðar.
Mótið er úrtaka fyrir Fjórðungsmót, einungis hestar i eigu Léttisfélaga munu ríða til úrslita í keppninni.
Keppt verður í:
A og B flokki gæðinga
Ungmennaflokki, Unglingafokki og Barnaflokki
Skráningargjaldið er 4000 kr. fyrir hvern hest og er skráning á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Skráningu lýkur á miðnætti 15. júní, þeir sem ekki hafa gengið frá greiðslu skráningargjalda fyrir miðnætti 15. júní munu ekki vera með í mótinu.
Allar fyrirspurnir og breytingar á skráningum þurfa að berast á lettir@lettir.is að lágmarki klukkustund áður en greinin byrjar.
Afskráningar sem berast eftir að ráslisti hefur verið birtur verða ekki endurgreiddar nema gegn framvísun læknisvottorðs. Ef skipt erum um hest eftir að ráslisti hefur verið birtur mun sá hestur og knapi færast fremst í rásröðina.
Stjórn Léttis.

Deila: