Kynbótasýning á Náttfaravellinum

Kynbótasýning verður haldin á Melgerðismelum 12.-14. maí. Skráning er í Búgarði, í síma 460 4477, eða á netfangið vignir@bugardur.is. Síðasti skráningardagur er 7. maí, sem jafnframt er síðasti greiðsludagur skráningargjalds. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr. 14.500 fyrir fulldæmd hross, en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm, eða hæfileikadóm. Hægt er að greiða í Búgarði, eða leggja inn á reikning 302-13-200861, kt.490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is, skýring nafn á hrossi. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingamerkingar, járningar, blóðsýni, DNA-sýni og spattmyndir.

Deila:

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *