Æskulýðsdagar 2014

LOKSINS er komið að hinum árlegu Æskulýðsdögum á Melgerðismelum! En við höfum heyrt að margir ungir knapar séu búnir að bíða mjög spenntir alveg síðan það tók að vora 😉 Að venju er þetta þriðja helgin í júlí, að þessu sinni 18. – 20. júlí, og er dagskráin eftirfarandi:

Föstudagskvöldið 18. júlí:

Skemmtunin byrjar með ratleik á hestum um Melana og þurfa knapar að vera tilbúnir á hestum sínum kl. 20:00 við hesthúsin. Skipt verður í nokkur lið og leystar þrautir og svarað hestatengdum spurningum og tekinn tíminn hjá hverju liði. Allir geta tekið þátt en þeir sem ekki hafa fulla stjórn á hestum sínum í hasarnum þurfa að vera með einhvern fullorðinn með sér og jafnvel láta teyma undir sér 🙂

 

Laugardagurinn 19. júlí:

–          Dagurinn hefst á þrautabraut kl. 10:00 og byrjað á yngsta flokki.

–          Kl. 13:00 Matarhlé og verðlaunaafhending fyrir ratleikinn.

–          Kl. 15:00 verður haldið í fjölskyldureiðtúr upp í gömlu Borgarréttina þar sem verður áð og trússbíll kemur með nesti fyrir alla. Börn eru á ábyrgð foreldra í þessum reiðtúr og vonandi að sem flestir fullorðnir skelli sér á bak með krökkunum 🙂

–          Kl. 19:00 Kvöldmatur (grill) og verðlaunaafhending fyrir þrautabrautina.

–          Kvöldið endar svo á kvöldvöku með varðeldi.

 

Sunnudagurinn 20. júlí:

Kl. 10:00 Hringvallarkeppni með útsláttarfyrirkomulagi. Frjálslegt og skemmtilegt. Nokkrir inni á vellinum í einu og farnir nokkrir hringir á gangtegund að eigin vali. Einnig verða veitt sérstök verðlaun fyrir flottasta parið þ.a. við hvetjum knapa til að klæða sig í búninga og skreyta hesta sína 🙂

 

–          Frítt í tjaldstæði fyrir alla.

–          Ókeypis hagi fyrir öll hross.

–          Kvöldgrillið er ókeypis fyrir börnin, fullorðnir geta keypt grillmat á kostnaðarverði.

–          Allir fá ókeypis nesti í reiðtúrnum.

–          Hvetjum alla hestakrakka til að taka foreldra sína með í útilegu á Melgerðismelum!

 

Tilkynna þarf þáttöku í síðasta lagi fimmtudaginn 17. júlí á netfangið annasonja@gmail.com.

 

–          Barna- og unglingaráð Funa

Deila: