UMSE mun standa fyrir tveim fyrirlestrum á Dalvík 4.-5. janúar.

UMSE mun standa fyrir tveim fyrirlestrum á Dalvík 4.-5. janúar.

Fyrirlestrarnir fara fram í Dalvíkurskóla og eru ætlaðir íþróttakrökkum,

11 ára og eldri. Ekkert þátttökugjald er að fyrirlestrinum og eru foreldrar sérstaklega velkomnir. Fyrirlestrarnir eru haldnir í tengslum við frjálsíþróttaæfingabúði UMSE.

 

Markmiðasetning

Laugardaginn 4. janúar, kl. 18:00.

Ellert Örn Erlingsson, íþróttasálfræðingur og forstöðumaður íþróttamála á Akureyri, mun fjalla um markmiðasetningu íþróttafólks:

•        Hvað er markmiðssetning?

•        Til hvers markmiðssetning?

•        Árangursrík markmiðssetning.

 

Heilbrigður lífsstíll

Sunnudaginn 5. janúar, kl. 13:00.

Sonja Sif Jóhannsdóttir, íþróttafræðingur, fjallar um heilbrigðan lífsstíl:

•        Mikilvægi þess að borða hollt og vel.

•        Mikilvægi svefns.

•        Mikilvægi hvíldar til að ná árangri í íþróttum og lifa heilbrigðu lífi.

•        Mikilvægi vatnsneyslu.

•        Muninn á orkudrykkjum og íþróttadrykkjum.

•        Jákvæð hugsun.

 

Nánari upplýsingar á veitir skrifstofa UMSE.

Einnig má sjá þessi viðhengi fyrirlestrar fyrirlestrar

Deila: