Æskulýðsmót á Skógarhólum

 

Æskulýðsmót á Skógarhólum

Æskulýðsnefnd LH fyrirhugar að halda æskulýðsmót á vegum sambandsins laugardaginn 22.júní í sumar. Mótið hefst snemma um morguninn og geta þátttakendur mætt á föstudeginum og gist í tjöldum eða í húsinu á Skógarhólum ( ath. að panta pláss).

Dagskráin samanstendur af leikjum og þrautum (hópefli og gaman), fræðslu, reiðtúr, grillveislu um kvöldið og kvöldvöku. Ekki er skilyrði að mæta með hesta, enginn þarf að fara á hestbak en þau nauðsynlegt að koma með hest ef menn ætla í reiðtúrinn um þjóðgarðinn eða taka þátt í þrautabraut.

Athugið að nauðsynlegt er að forráðamenn/fararstjórar fylgi öllum hópum.

Stefnt er að því að hafa kostnað í lágmarki.

Æskulýðsnefnd LH biður ykkur um að segja ykkar skoðun á þessum viðburði, kanna áhuga ykkar fólks, fjölda þátttakenda (gróflega) og láta vita á netfangið hilda@landsmot.is fyrir 1.júní 2013.

Ef allir leggjast á eitt er hægt að gera svona viðburð eftirminnilegan fyrir æskulýðinn okkar og mikilvægan fyrir hópefli krakkanna í hestamennskunni.

 

Hlökkum til að heyra frá ykkur,

æskulýðsnefnd LH & Hilda Karen Garðarsdóttir verkefnastjóri LH

 

 

 

Deila: