Fræðslufundur um skeiðgenið

Hestamannafélagið Funi og Hrossaræktarfélagið Náttfari bjóða til fræðslufundar um skeiðgenið. Í Funaborg, föstudaginn 1. marz kl. 20:30 Kristinn Hugason, kynbótafræðingur, verður með framsöguerindi um þessa stórmerkilegu uppgötvun innan erfðafræðinnar og síðan má búast við líflegum umræðum í kjölfarið. Hvetjum alla til að mæta. -Veitingasala opin. Funi og Náttfari

Aðalfundur Funa

Aðalfundur Hestamannafélagsins Funa verður haldinn í Funaborg fimmtudaginn 28. febrúar kl. 20.30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Gert er ráð fyrir að formenn nefnda skili ársskýrslu til stjórnar fyrir aðalfund eða á fundinum sjálfum. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin