Happadrætti – Langar þig í miða? Hafðu samband!
Skoðið fréttina til þess að sjá vinninga sem eru í boði
Bæjakeppni Funa
Bæjakeppni Funa var haldin á Melgerðismelum á Jónsmessunni, en þá voru 45 ár frá því fyrsta bæjakeppnin var haldin. Bæjakeppnin er mikilvæg tekjuöflun fyrir félagið og þökkum við öllum þátttakendum kærlega fyrir stuðninginn. Niðurstöður keppninnar fylgir hér með.
Melgerðismelar 2023
Opið gæðingamót Funa og úrtaka fyrir fjórðungsmót fór fram á Melgerðismelum 18. júní s.l. Niðurstöður mótsins fylgja hér með.
Tölt og kappreiðar
Haldin var töltkeppni og kappreiðar á Melgerðismelum 16. júní s.l. Unnið var við að endurnýja snúrur á kappreiðavellinum alveg fram á seinustu stundu, en mótið gekk ágætlega í blíðaskaparveðri. Niðurstöður mótsins fylgja hér með.
Opið gæðingamót Funa 16. og 18. júní
Föstudaginn 16. júní kl. 18.00 verða kappreiðar og töltkeppni á Melgerðismelum. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: Tölt T1 Tölt T3 150 metra skeið 250 metra skeið 300 metra brokk 300 metra stökk Sunnudaginn 18. júní verður svo gæðingakeppni og úrtaka fyrir fjórðungsmót. Keppt í þessum flokkum: A – flokkur B – flokkur Ungmennaflokkur Unglingaflokkur Barnaflokkur …
Sumarið er komið
Húsbílaklúbburinn Flakkarar hefur komið saman á Melgerðismelum í byrjun sumars undanfarið.
Aðalfundur
Aðalfundur hestamannafélagsins Funa verður haldinn í Funaborg á Melgerðismelum föstudagskvöldið 13. mars nk. kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Nýjir félagar velkomnir. Kaffiveitingar. Stjórnin.
Landsmót 2020
Kæru félagsmenn! Nú geta félagsmenn keypt vikupassa á Landsmót Hestamanna sem haldið verður á Hellu 6. – 12. júlí 2020 og styrkt um leið félagið okkar. Með því að kaupa í forsölu í gegnum linkinn hér að neðan renna 1.000 kr til hestamannafélagsins. Miðaverð í forsölu er aðeins 16.900 kr. https://tix.is/is/specialoffer/kdhojh7rtte4m Tökum höndum saman – styðjum félagið og …