Reiðnámskeið á Melgerðismelum

Anna Sonja að störfum
Það er mikið líf á Melgerðismelum þessa dagana. Ágúst, Hulda og Anna Sonja eru komin með 3 hross í stíurnar sínar. Reiðskemman mikið notuð og einnig riðið út og þjálfað á frábæru svæði og hrossunum sýndur kynbótavöllurinn. Biggi og Ásdís eru með nokkur hross þarna líka og einnig Jónas og Stína. Auk þess sem Anna Sonja er með reiðnámskeið fyrir krakka á vegum Funa út apríl. Það byrjaði á mánudaginn og gekk mjög vel þrátt fyrir að það væri aðeins læti í skemmunni vegna vindsins og sumir hestarnir voru aðeins smeykir. En krakkarnir stóðu sig alveg ótrúlega vel og á endanum slökuðu allir hestarnir á. Þátttakan var góð, alls 14 krakkar í þremur mismunandi hópum.

Deila: