Hestadagar í Reykjavík


Undirbúningur fyrir hestadaga sem haldnir verða 26.mars til 2.apríl 2011 er nú í fullum gangi. Dagská hátíðarinnar er tilbúin og má sjá á www.hestadagar.is
Laugardagurinn 2 .apríl verður einn af stærstu dögunum á hátíðinni, þar sem frítt verður inn í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn. Þar verður mikið um að vera allan daginn með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Búist er við miklum fjölda í Laugardalinn þennan dag. Hestaþorp verður staðsett í miðjum garðinum þar sem handverksfólki og öðrum afþreyingarfyrirtækjum stendur til boða að vera með kynningar og sölubása. Sölubásarnir sem verða á staðnum eru húsin (jólaþorpið) sem er í eigu Hafnafjarðarbæjar. Athugið að aðeins er um einn dag að ræða frá kl 10-17. Þorpið verður sett upp föstudaginn 1.apríl
Verð fyrir daginn/plássið er kr 7.500,-
Áhugasamir hafið samband við Ingibjörgu sem gefur allar nánari upplýsingar um Hestaþorpið á straumver@gmail.com

Deila: