Stjórnin hyggst ekki kæra til ÍSÍ

Samkvæmt viðtali við Val formann í Vikudegi þann 2. janúar hyggst stjórn Funa ekki kæra ákvörðun stjónar Landsambands hestamanna varðandi val á landsmótsstöðum 2014 og 2016 til ÍSÍ. Viðtalið við Val má nálgast hér.

Vegna fréttar í Morgunblaðinu

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að kæra ákvörðun LH til ÍSÍ líkt og kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Ákvörðun verður hins vegar tekin á stjórnarfundi Funa í dag. Valur formaður

Fræðslufyrirlestur 5. janúar 2012

Fimmtudaginn 5. janúar verður fræðslufyrirlestur í Funaborg með Jóhanni Friðgeirssyni reiðkennara. Jóhann hefur áratuga reynslu af reiðkennslu, ræktun, tamningum og sýningum bæði hér heima og erlendis. Jóhann mun fjalla um ábendingar knapa og skilaboð þeirra til hestsins. Jóhann mun svara fyrirspurnum úr sal og því tilvalið tækifæri til að fá góð ráð frá fagmanninum. Funaborg …

Fræðslufyrirlestur 5. janúar 2012 Read More »

Yfirlýsing frá Stjórn Funa

Stjórn Funa gerir alvarlega athugasemd við vinnubrögð stjórnar LH við úthlutun landsmótanna 2014 og 2016. Á sama tíma og umsókn hestamannafélagsins Funa um Landsmót 2016 er talin veik þá er ákveðið að mótið skuli haldið á Vindheimamelum þrátt fyrir að formleg umsókn liggi ekki inni frá staðarhöldurum þar. Komið hefur fram í fjölmiðlum að stjórn …

Yfirlýsing frá Stjórn Funa Read More »

Vinnubrögðum stjórnar LH mótmælt

Hestamannafélagið Funi í Eyjafirði gagnrýnir harðlega ákvörðun stjórnar LH um að velja landsmóti stað á Gaddstaðaflötum 2014 og Vindheimamelum 2016. Tillaga um að hafa tvö landsmót á Suðurlandi á móti einu á Norðurlandi var rædd og hafnað af formannafundi LH og aðalfundi Félags hrossabænda 2011. Æðsta samkoma LH er ársþing og þar á eftir koma …

Vinnubrögðum stjórnar LH mótmælt Read More »

Landsmót – 2014?

Stjórn Funa ásamt sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar,  Akureyrarstofu og markaðsstofu Norðurlands áttu ánægjulegan fund með stjórn LH og LM. Þar kynntu aðilar sín sjónarmið og lögðu áherslu á að þetta væri verkefni sem Eyfirðingar ætluðu að standa að sem samfélag. Reynsla Eyfirðinga af Handvershátíðinni hefur gefið okkur reynslu sem nýtist þegar taka á við miklum fjölda gesta. …

Landsmót – 2014? Read More »

Jólabingó

Jólabingó haldið í Funaborg  laugardaginn 10. desember kl 13:30 Glæsilegir vinningar í boði. Húsnefndin.