Skil á haustskýrslu

Í samræmi við lög um búfjárhald nr. 38/2013 skulu umráðamenn búfjár árlega skila haustskýrslu fyrir 20. nóvember um búfjáreign, fóður og eftir atvikum landstærðir. Haustskýrslu skal skrá og skila rafrænt á síðunni www.bustofn.is.

Aðgengi að www.bustofn.is er fengið með rafrænum lykli ( Íslykill ) og opnast aðgangur þegar kennitala og lykilnúmer hafa verið skráð. Íslykill er gefinn út af Þjóðskrá og er lykilorð hans tengt kennitölu einstaklings eða lögaðila.

Nánari upplýsingar um Íslykil má nálgast á síðunni www.island.is . Hafi ekki verið sótt um Íslykil er hægt að gera það eftir að aðgangur að skýrslu hefur verið ræstur með hnappnum sem sýndur er á forsíðu Bústofns. Íslykil er hægt að fá sendan í heimabanka og tekur það um 5 -10 mínútur. Eins er hægt að fá hann sendan í bréfpósti og tekur það 4-6 virka daga.

Óski búfjáreigandi eftir aðstoð dýraeftirlitsmanns MAST er hægt að hafa samband í síma 530-4800 eða á mast@mast.is

Þeim sem eiga eða halda búfé en hafa ekki verið skráðir búfjáreigendur í Bústofni er bent á að hafa samband við dýraeftirlitsmenn sem annast nýskráningar og leiðréttingar. Upplýsingar um dýraeftirlitsmenn má nálgast á heimasíðu Matvælastofnunar.

Þeir sem þurfa aðstoðar við vegna rafrænna skila stendur til boða þjónusta Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins RML við skil á haustskýrslu. Hafa má samband við RML í síma 516-5000 eða með tölvupósti á netfangið rml@rml.is

Sérstök athygli er vakin á að eftir að upplýsingar hafa verið skráðar þarf að ljúka skýrslu með sérstökum skilahnapp.

 

Deila: