Enn eru laus pláss á reiðnámskeiði hjá Benedikt Líndal

Hestamannafélagið Funi heldur þriggja helga námskeið á Melgerðismelum í samstarfi við Benedikt Líndal tamningameistara.

Um er að ræða þriggja helga námskeið þar sem verkleg kennsla fer fram í þremur þriggja manna hópum tvisvar á dag. Að auki verður bókleg kennsla eftir hádegi alla dagana. Lögð verður áhersla á fjölbreyttar leiðir til að bæta samspil. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni með einn taminn hest yfir allt námskeiðið. Námskeiðið kostar 66.000 kr. á mann og verður haldið helgarnar 14.-15. mars, 28.-29. mars og 18.-19. apríl.

Búið var að fylla þetta námskeið hjá Funa, en nú hafa losnað þrjú pláss og áhugasömum er bent á að hafa samband.

Nánari upplýsingar veitir Valur í Hólshúsum í síma 660 9038 eða í tölvupóstinumvalur@holshus.net

Fræðslunefnd Funa

Benni Líndal
Benni Líndal
Deila: