Bæjakeppni Hestamannafélagsins Funa 2014

Bæjakeppni Funa verður haldin á Melgerðismelum sunnudaginn 31. ágúst. Skráning verður á staðnum milli kl. 12:00-12:30. Keppni hefst kl. 13:00. Keppt verður í flokki polla, barna, unglinga, ungmenna, karla og kvenna með hefðbundnu og frjálslegu sniði. Að því loknu fer fram keppni í þrautabraut (TREC). Allir flokkar verða opnir og viljum við hvetja allt reiðfært fólk til að taka þátt. Kaffisala verður á staðnum.

Deila: