Leiðtogaskóli NSU, 62° norður – 7° vestur

Dagana 4.-10.ágúst nk. heldur Føroya Ungdómsráð, FUR, leiðtogaskóla NSU í Selstæð sem er í um klukkustundar fjarlægð frá Þórshöfn í Færeyjum.

Þema leiðtogaskólans í ár er nýsköpun, hugmyndavinna og efling ungs fólks á norðurlöndum. Í leiðtogaskólanum fá þátttakendur að upplifa Færeyska náttúru, mat og menningu í bland við útiveru og útivist sem veitir reynslu og upplifun til æviloka. Nánari upplýsingar má finna hér: http://www.nsu.is/files/2014/files/InvitationNordiskLederskole2014.pdf
UMFÍ á sæti fyrir 5 þátttakendur á aldrinum 18.-30.ára að þessu sinni og styrkir alla þátttakendur sína til ferðarinnar. Skráningarfrestur í Leiðtogaskólann rennur út 30.maí nk.
Allar nánari upplýsingar um kostnað og styrki veitir Sabína Steinunn landsfulltrúi í síma 568-2929 og á netfanginu sabina@umfi.is.

Deila: