Ágætu Funafélagar og sveitungar

Laugardaginn 29. júní:

•  Vinnudagur 13-17:  Vinnudagur verður á Melgerðismelum milli kl. 13-17.  Farið verður í almenna tiltekt, girðingarvinnu og smíðavinnu.  Gott væri ef menn tækju með smáverkfæri í samræmi við þessi verkefni.

•  Grill 19-20:  Um kvöldið verður grill frá 19-20.  Funi sér um meðlætið og að hafa grillið heitt,  hver og einn tekur með sér kjöt að eigin vali.

•  Reiðtúr 20:30-22:  Að loknum kvöldmat verður sameiginlegur reiðtúr á Melgerðismelum frá kl. 20:30 – 22:00.

Sunnudaginn 30. júní:

•  Messureið.  Riðið verður frá Melgerðismelum til messu í Hólakirkju.  Haldið verður frá Melgerðismelum kl. 10:00 stundvíslega.  Messan hefst kl. 13:00.

 

Vonumst til að sjá sem flesta.  Allir velkomnir.  Stjórn og ferðanefnd Funa.

 

Deila: