Járningarnámskeið

Mynd fengin af hestabladid.is Dagana 3. og 4. febrúar verður Gestur Páll járningarmeistari og dýralæknir með járningarnámskeið. Nú er um að gera að taka dagana frá og skella sér á námskeið. Verkalýðsfélög á borð við Einingu-Iðju greiða niður námskeiðiskostnað fyrir félagsmenn sína. Námskeiðið verður nánar auglýst síðar Fræðslunefnd Funa

Hestadómarinn

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands að Hvanneyri í samstarfi við Gæðingadómarafélag LH og Íþróttadómarafélag LH mun bjóða upp á námskeiðið Hestadómarinn. Námskeiðið er hugsað fyrir starfandi dómara, fólk sem vill gerast dómarar og einnig fyrir hinn almenna hestamann sem vill bæta við þekkingu sína. Verkalýðsfélög á borð við Einingu-Iðju greiða niður námskeiðiskostnað fyrir félagsmenn sína. Nú er …

Hestadómarinn Read More »

Fræðslufyrirlestur Jóhanns Friðgeirssonar

Á myndinni eru þau Rósa Hreinsdóttir (Halldórsstöðum), Birgir Stefánsson (Litla-Garði) og Ágúst Ásgrímsson (Kálfagerði). Á fræðslufyrirlestrinum þann 5. janúar fræddi Jóhann Friðgeirsson okkur um ábendingar knapa og viðbrögð hestsins við þeim. Jóhann hefur starfað við reiðkennslu, tamningar, sýningar og í raun allt það sem fellur til við hestamennskuna áratugum saman. Síðustu 20 árin hefur hann að mestu kennt í …

Fræðslufyrirlestur Jóhanns Friðgeirssonar Read More »

Stjórnin hyggst ekki kæra til ÍSÍ

Samkvæmt viðtali við Val formann í Vikudegi þann 2. janúar hyggst stjórn Funa ekki kæra ákvörðun stjónar Landsambands hestamanna varðandi val á landsmótsstöðum 2014 og 2016 til ÍSÍ. Viðtalið við Val má nálgast hér.

Vegna fréttar í Morgunblaðinu

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að kæra ákvörðun LH til ÍSÍ líkt og kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Ákvörðun verður hins vegar tekin á stjórnarfundi Funa í dag. Valur formaður

Fræðslufyrirlestur 5. janúar 2012

Fimmtudaginn 5. janúar verður fræðslufyrirlestur í Funaborg með Jóhanni Friðgeirssyni reiðkennara. Jóhann hefur áratuga reynslu af reiðkennslu, ræktun, tamningum og sýningum bæði hér heima og erlendis. Jóhann mun fjalla um ábendingar knapa og skilaboð þeirra til hestsins. Jóhann mun svara fyrirspurnum úr sal og því tilvalið tækifæri til að fá góð ráð frá fagmanninum. Funaborg …

Fræðslufyrirlestur 5. janúar 2012 Read More »

Yfirlýsing frá Stjórn Funa

Stjórn Funa gerir alvarlega athugasemd við vinnubrögð stjórnar LH við úthlutun landsmótanna 2014 og 2016. Á sama tíma og umsókn hestamannafélagsins Funa um Landsmót 2016 er talin veik þá er ákveðið að mótið skuli haldið á Vindheimamelum þrátt fyrir að formleg umsókn liggi ekki inni frá staðarhöldurum þar. Komið hefur fram í fjölmiðlum að stjórn …

Yfirlýsing frá Stjórn Funa Read More »

Vinnubrögðum stjórnar LH mótmælt

Hestamannafélagið Funi í Eyjafirði gagnrýnir harðlega ákvörðun stjórnar LH um að velja landsmóti stað á Gaddstaðaflötum 2014 og Vindheimamelum 2016. Tillaga um að hafa tvö landsmót á Suðurlandi á móti einu á Norðurlandi var rædd og hafnað af formannafundi LH og aðalfundi Félags hrossabænda 2011. Æðsta samkoma LH er ársþing og þar á eftir koma …

Vinnubrögðum stjórnar LH mótmælt Read More »