Styrkir úr Æskulýðssjóði
Mennta og menningarmálaráðurneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði, sjá nánar á Æskulýðsstyrkur
Mennta og menningarmálaráðurneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði, sjá nánar á Æskulýðsstyrkur
Folalda- og ungfolasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður í Melaskjóli, Melgerðismelum, laugardaginn 28. janúar 2012. Hrossin verða sköpulagsskoðuð frá kl. 10 og hlaupaæfingar hefjast kl. 13. Eyþór Einarsson mun stýra dómshaldi. Skráningar berist til Þorsteins á Grund um tölvupóst í netfangið theg@isor.is fyrir lok fimmtudagsins 26. janúar. Skrá þarf nafn og fæðingarnúmer hrossa ásamt símfangi umráðamanns. Kveðja …
Til stendur að hafa vinnukvöld miðvikudagskvöldið 25. jan. kl. 20:00 til að setja upp batta í reiðskemmuna. Ef einhverjir eiga lausa kvöldstund væri aðstoð vel þegin. Þeir sem koma mættu gjarnan taka með sér skrúf-vélar ef þær eru til á heimilinu.
Mynd fengin af hestabladid.is Dagana 3. og 4. febrúar verður Gestur Páll járningarmeistari og dýralæknir með járningarnámskeið. Nú er um að gera að taka dagana frá og skella sér á námskeið. Verkalýðsfélög á borð við Einingu-Iðju greiða niður námskeiðiskostnað fyrir félagsmenn sína. Námskeiðið verður nánar auglýst síðar Fræðslunefnd Funa
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands að Hvanneyri í samstarfi við Gæðingadómarafélag LH og Íþróttadómarafélag LH mun bjóða upp á námskeiðið Hestadómarinn. Námskeiðið er hugsað fyrir starfandi dómara, fólk sem vill gerast dómarar og einnig fyrir hinn almenna hestamann sem vill bæta við þekkingu sína. Verkalýðsfélög á borð við Einingu-Iðju greiða niður námskeiðiskostnað fyrir félagsmenn sína. Nú er …
Á myndinni eru þau Rósa Hreinsdóttir (Halldórsstöðum), Birgir Stefánsson (Litla-Garði) og Ágúst Ásgrímsson (Kálfagerði). Á fræðslufyrirlestrinum þann 5. janúar fræddi Jóhann Friðgeirsson okkur um ábendingar knapa og viðbrögð hestsins við þeim. Jóhann hefur starfað við reiðkennslu, tamningar, sýningar og í raun allt það sem fellur til við hestamennskuna áratugum saman. Síðustu 20 árin hefur hann að mestu kennt í …
Hin árlega könnun fræðslunefndar hefur nú verið send út. Könnunina má einnig nálgast hér. Fræðslunefnd
Samkvæmt viðtali við Val formann í Vikudegi þann 2. janúar hyggst stjórn Funa ekki kæra ákvörðun stjónar Landsambands hestamanna varðandi val á landsmótsstöðum 2014 og 2016 til ÍSÍ. Viðtalið við Val má nálgast hér.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að kæra ákvörðun LH til ÍSÍ líkt og kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Ákvörðun verður hins vegar tekin á stjórnarfundi Funa í dag. Valur formaður
Fimmtudaginn 5. janúar verður fræðslufyrirlestur í Funaborg með Jóhanni Friðgeirssyni reiðkennara. Jóhann hefur áratuga reynslu af reiðkennslu, ræktun, tamningum og sýningum bæði hér heima og erlendis. Jóhann mun fjalla um ábendingar knapa og skilaboð þeirra til hestsins. Jóhann mun svara fyrirspurnum úr sal og því tilvalið tækifæri til að fá góð ráð frá fagmanninum. Funaborg …