Melgerðismelar 2016 og gæðingakeppni Funa

Nú er hafin skráning á opið stórmót hestamanna á Melgerðismelum, sem haldið verður helgina 13. og 14. ágúst nk. Mótið er jafnframt gæðingakeppni Funa.

Keppt verður í A- og B-flokki, ungmenna-, unglinga- og barnaflokki og fyrirkomulagið verður þannig að sérstök forkeppni fer fram með þrem keppendum inni á vellinum í einu.

Þá verður keppt í tölti T3 með tvo keppendur inni á vellinum í forkeppni.

Í kappreiðum verður keppt í 100 m flugskeiði, 150 m skeiði og 250 m skeiði, 300 m stökki og 300 m brokki. Peningaverðlaun verða í boði í kappreiðunum, 1. sæti 15. þús., 2. sæti 10 þús. og 3. sæti 5 þús. kr. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður greinar ef þátttaka verður ekki næg. Skráningargjald er kr. 3.000- fyrir hverja grein, en skráning fer fram á vefnum á slóðinni http://skraning.sportfengur.com/ en þar þarf að velja félagið Funa, fylla út skráninguna, setja í vörukörfu og velja greiðslu með millifærslu. Greiðsla berist á reikning 0162-05-269390 kt. 470792-2219. Greiðslukvittun sendist á netfangið annakrarna@simnet.is

Seinasti skráningar- og greiðsludagur er miðvikudagurinn 10. ágúst kl. 22.00 og eru keppendur hvattir til að skrá sig snemma til að hægt sé að bregðast við vandamálum sem kunna að koma upp.

Mótanefnd Funa.

Deila: