Melgerðismelar 2015 – niðurstöður

Lokið er árlegu móti Funa á Melgerðismelum í ágætu veðri eins og oftast er þegar mót þetta er haldið. Mótið var jafnframt gæðingakeppni Funa.

Tónn frá Litla-Garði og Sindri Snær sigruðu í barnaflokki

Þátttaka var minni en vanalega og er samkeppnin orðin mikil.

Styrktaraðilar mótsins voru Lífland, Eimskip og Bústólpi sem kostuðu verðlaun á mótinu og auk þess gaf Gestur Júlíusson dýralæknir peningaverðlaun í 100 m skeiði og Kálfagerði í stökki. Fjölskyldan í Kálfagerði vann stökkið og gaf verðlaunin í sjóð til að safna fyrir startbásum. Litla-Dalshjónin hafa gefið peningaverðlaun í 250 m skeiði, en enginn skráði í þá grein á þessu móti og þau hétu því sömu upphæð til söfnunar fyrir startbásum. Grund II hefur styrkt brokkkappreiðarnar frá upphafi og hefur nú styrkt startbásasöfnunina um tvöfalda verðlaunaupphæð eða 60 þús. kr.
Þá er rétt að geta þess að systurnar Auðrún og Anna Aðalsteinsdætur frá Syðra-Hóli gáfu nýjan farandbikar í B-flokki hjá Funa til minningar um Gullinstjörnu sem þær systur áttu, en Gullinstjarna vann B-flokkin hjá Funa árin 1997 og 1998.
Öllum þessum aðilum er þakkað kærlega fyrir stuðninginn og á næsta móti að ári verða kappreiðar með nýjum startbásum.
Meðfylgjandi eru niðurstöður keppninnar í ár og efstu hestar og knapar hjá Funa eru merktir með grænum lit. Undankeppni. Kappreiðar. Úrslit.
tolt
Sigurvegarar í tölti
300m_stokk
Sigurvegarar í 300m stökkkappreiðum
A-flokkur
Sigurvegarar í A-flokki
barnafl
Sigurvegarar í barnaflokki
urslit_B-fl
Sigurvegarar í B-flokki
Mótanefnd Funa
Deila: