Gæðingakeppni og úrtaka fyrir fjórðungsmót

Gæðingakeppni Funa verður haldin á Melgerðismelum 9. júní n.k.
Keppt verður í A- og B-flokki, polla-, barna-, unglinga- og ungmennaflokki ef næg þátttaka fæst.
Gæðingakeppnin er jafnframt úrtaka fyrir fjórðungsmót á Hornafirði.
Skráningu skal senda á tölvupóstfang litli-dalur@litli-dalur.is, eða í síma 861 8286 í seinasta lagi föstudaginn 7. júní.

Fram komi:
IS-númer hests og nafn, nafn eiganda, nafn og kennitala knapa auk upplýsinga um í hvaða greinar er verið að skrá.

Mótanefnd Funa

Deila: